Skip to main content

Svartidauði, spænska veikin og svínaflensa

Svartidauði, spænska veikin og svínaflensa - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
11. mars 2018 14:00 til 14:45
Hvar 

Þjóðminjasafnið

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Sunnudaginn 11. mars kl. 14 veitir Magnús Gottfreðsson, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, gestum Þjóðminjasafnsins innsýn í smitsjúkdóma og meðhöndlun sjúklinga hér á landi frá svartadauða á miðöldum til dagsins í dag.

Fullveldisárið 1918 gekk skæð sótt, spænska veikin svokallaða og felldi marga. Þá öld sem liðin er hafa læknavísindi tekið stórstígum framförum og ljósmyndir úr fórum safnsins varpa ljósi á þær.
Á 100 ára fullveldisafmæli Íslands stendur Þjóðminjasafn Íslands fyrir sérstakri dagskrá á sýningum safnsins á Suðurgötu.

Valinkunnir einstaklingar, sem þekktir eru fyrir störf sín í þágu samfélagsins, veita leiðsögn og ræða við safngesti um hugðarefni sín. Dagskrána má nálgast hér.

Leiðsögnin hefst klukkan 14. Verið velkomin, aðgangur ókeypis.

Magnús Gottfreðsson, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, veitir gestum Þjóðminjasafnsins innsýn í smitsjúkdóma og meðhöndlun sjúklinga hér á landi frá svartadauða á miðöldum til dagsins í dag.

Svartidauði, spænska veikin og svínaflensa