Staðurinn fyrir útimenntun
Frístundamiðstöðin Gufunesbær, við Gufunesveg, 112 Reykjavík
Dr. Mark Leather flytur erindið:
Staðurinn fyrir útimenntun
- Áfangastaðurinn Plymouth og staðarbundnar nálganir í útimenntun
Mark Leather er dósent í ævintýramenntun og útinámi við Plymouth Marjon háskólann í Bretlandi. Hann sérhæfir sig í reynslunámi og hefur síðan 2014 verið í ánægjulegu samstarfi við Háskóla Íslands. Hann hefur meðal annars skrifað um skógarskóla, staðartengt nám, siglingar og mikilvægi menntunarfræði John Dewey. Hann mun fjalla um ýmsa þætti er tengjast útinámi og náttúru.
Smelltu hér til að fá frekari upplýsingar um Mark
Færni Marks í að tala íslensku tekur framförum undir dyggri leiðsögn og hefur nú náð tökum á að segja „þetta reddast!“
Viðburðurinn er á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Samtaka áhugafólks um útinám og Frístundamiðstöðvar Gufunesbæjar.
Mark Leather er dósent í ævintýramenntun og útinámi við Plymouth Marjon háskólann í Bretlandi. Hann sérhæfir sig í reynslunámi og hefur síðan 2014 verið í ánægjulegu samstarfi við Háskóla Íslands.