Skip to main content

Staða kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum og samspil við embættismenn

Staða kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum og samspil við embættismenn - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
5. apríl 2019 13:00 til 14:30
Hvar 

Laugarvatn - kennslu og heimavist

Stofa 3

Nánar 
Erindið fer fram á ensku

Staða kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum og samspil við embættismenn. Í ljósi æ flóknari verkefna, vaxandi áreitis og  aukinna krafna íbúa.

Sveitarfélög eru ein af grunnstoðum staðbundins lýðræðis. Í ljósi þess gegna kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum mikilvægu lýðræðislegu hlutverki.

Þrátt fyrir að mikils sé krafist af kjörnum fulltrúum þá upplifa þeir oft að staða þeirra sé ekki viðurkennd til jafns við stjórnmálamenn á öðrum stjórnstigum. Á Íslandi eins og í nágrannalöndum okkar er endurnýjunarhlutfall í sveitarstjórnum er hátt, oft er erfitt að manna sveitarstjórnir og kosningaþátttaka fer ört minnkandi.

Í málstofunni mun Colin Copus skoða reynslu kjörinna fulltrúa í enskum sveitarfélögum, og hvernig þeim gengur að uppfylla væntingar íbúa í sífellt flóknari heimi stjórnmálanna. Sérstök áhersla er lögð á að skoða hvaða lærdóm íslenskt sveitarstjórnarfólk getur dregið af reynslu þessarra nágranna sinna og bent á þætti sem geta styrkt stöðu sveitarstjórnarfulltrúans og sveitarstjórna í heild.

Að lokinni málstofu hefst formlegt opnunarhóf Rannsóknaseturs um sveitastjórnarmál.

Skráning á málstofuna fer fram hér: http://stjornsyslustofnun.hi.is/node/1449

Málstofan verður haldin föstudaginn 5. apríl kl. 13 - 14:30 í húsnæði Háskóla Íslands á Laugarvatni. Aðgangur er ókeypis. Erindið fer fram á ensku. Formleg opnun Rannsóknaseturs um sveitarstjórnarmál hefst kl. 15.
Kennari er Colin Copus emeritus professor í sveitastjórnarfræðum við De Montfort háskólann í Leicester og gestaprófessor við við háskólann í Ghent.
Skráning á málstofuna fer fram hér: http://stjornsyslustofnun.hi.is/node/1449

Staða kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum og samspil við embættismenn