Snjallt skólastarf – möguleikar og áskoranir nýrrar tækni
Stakkahlíð / Háteigsvegur
Ágústráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun verður haldin þann 14. ágúst í samstarfi við RANNUM. Þar verður snjalltæknin til skoðunar, möguleikar hennar, áskoranir og sóknarfæri.
Á ráðstefnunni verður boðið upp á erindi, málstofur, kynningar, hugarflugsfundi og vinnustofur. Síðdegis verður auk þess efnt til menntabúða. Menntabúðirnar verða í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð menntamála í Reykjavík og UT-torg.
Í tengslum við ráðstefnuna flytur dr. Jennifer Rowsell, prófessor við Háskólann í Bristol, fyrirlestur í Skriðu (Menntavísindaviði Háskóla Íslands) þann 13. águst, kl. 15.00. Fyrirlesturinn nefnist Feeling Smart & Being Digital: Embracing the possibilities of digital pedagogy in challenging times (Verum snjöll: Tökum tækifærum upplýsingatækni í skólastarfi opnum örmum á ögrandi tímum).
Fullbókað er á ráðstefnuna en þeir sem vilja skrá sig á biðlista geta gert það hér.
Ágústráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun verður haldin þann 14. ágúst í samstarfi við RANNUM. Þar verður snjalltæknin til skoðunar, möguleikar hennar, áskoranir og sóknarfæri.