Skip to main content

Skiptinám og aðrir möguleikar erlendis (Á ensku)

Skiptinám og aðrir möguleikar erlendis (Á ensku) - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
5. nóvember 2020 12:00 til 12:40
Hvar 

Á netinu

Nánar 
Kynningin er haldin í tengslum við Alþjóðadaga Háskóla Íslands

Fulltrúar frá Skrifstofu alþjóðasamskipta kynna möguleika á spennandi skiptinámi, starfsþjálfun og sumarnámi sem standa nemendum Háskóla Íslands til boða. Kynningin fer fram á netinu og er öllum opin.

Tengjast Teams-kynningu

Háskóli Íslands er í samstarfi við yfir 400 háskóla víða um heim og árlega nýta sér fjölmargir að taka hluta af náminu erlendis og sækja sér þannig sérhæfingu í námi og dýrmæta reynslu.

Kostir þess að fara í skiptinám:

» fjölbreyttara námsframboð
» tækifæri til sérhæfingar
» einingar metnar
» einfaldara og ódýrara en nám á eigin vegum
» möguleikar á ferða- og dvalarstyrkjum
» niðurfelld skólagjöld við gestaskóla
» tækifæri til að kynnast tungumáli og menningu annarra landa
» alþjóðlegt tengslanet
» dýrmæt reynsla sem nýtist í frekara námi eða á vinnumarkaði

Kynningin er á ensku og er haldin í tengslum við Alþjóðadaga Háskóla Íslands dagana 4.-6. nóvember.

Háskóli Íslands er í samstarfi við yfir 400 háskóla víða um heim og árlega nýta sér fjölmargir að taka hluta af náminu erlendis og sækja sér þannig sérhæfingu í námi og dýrmæta reynslu.

Skiptinám og aðrir möguleikar erlendis