Skip to main content

Samtal við leikhús: Vanja frændi

Samtal við leikhús: Vanja frændi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
17. febrúar 2020 17:00 til 18:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Samtal við leikhús er málfundaröð til heiðurs Vigdísi Finnbogadóttur þar sem atvinnuleikhúsfólk og fræðimenn koma saman og ræða uppsetningar á leikverkum sem eru í sýningu hjá leikhúsunum.

Í Veröld – húsi Vigdísar þann 17. febrúar kl. 17:00 verða pallborðsumræður um sýningu Borgarleikhússins á Vanja frænda eftir rússneska leikskáldið Anton Tsjékhov. 

Hvaða erindi á verkið við okkur í dag?
Hvernig nálgast leikstjóri uppsetningu verksins?
Hvernig vinnur þýðandinn úr textanum?
Þessum spurningum og fleirum verður velt upp í Veröld - húsi Vigdísar þann 17. febrúar.

Í pallborði verða Rebekka Þráinsdóttir, aðjunkt í rússnesku, Gunnar Pétursson þýðandi verksins, Brynhildur Guðjónsdóttir leikstjóri og Valur Freyr Einarsson leikari. Guðrún Kristinsdóttir, doktorsnemi í frönskum fræðum, stýrir umræðum.

Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir.

Samtal við leikhús

facebook

Samtal við leikhús: Vanja frændi

Samtal við leikhús: Vanja frændi