Skip to main content

Samtal við leikhús: ÖR (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur)

Samtal við leikhús: ÖR (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur)   - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
7. október 2019 17:00 til 18:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Fyrirlestrasalur VHV023

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Samtal við leikhús er málfundaröð til heiðurs Vigdísi Finnbogadóttur þar sem leikhúsfólk og fræðimenn koma saman og ræða uppsetningar á leikverkum sem eru í sýningu hjá leikhúsunum.

Fyrsta samtalið þetta haustið verður í Veröld – húsi Vigdísar þann 7. október kl. 17:00. Þar verður rætt um nýja sýningu Þjóðleikhússins á Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) eftir Auði Övu Ólafsdóttur. Skáldsaga Auðar Övu Ör, sem hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2018, spratt á sínum tíma af uppkasti höfundarins að leikriti sem hún hefur nú lokið við að semja. Leikritið er sjálfstætt verk sem lýtur eigin lögmálum, þótt það byggist á sama grunni og skáldsagan. Jónas Ebeneser, fráskilinn karlmaður á miðjum aldri, fær að vita að uppkomin dóttir hans, Vatnalilja, er í raun barn annars manns. Vængbrotinn reynir Jónas að átta sig á hlutverki sínu í heiminum og skilja konur. Leikritið Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) er í senn órætt, fyndið og ágengt, og spyr áleitinna spurninga um lífið og dauðann, samskipti kynjanna og leit að samastað í veröldinni.

Auður Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur mun fjalla um verkið og verður svo í pallborði ásamt Ólafi Agli Egilssyni leikstjóra, höfundinum Auði Övu Ólafsdóttur og Baldri Trausta Hreinssyni leikara. Gréta Kristín Ómarsdóttir dramatúrg stýrir umræðunum.

Nánar um Samtal við leikhús hér

facebook

Samtal við leikhús: ÖR (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur)

Samtal við leikhús: ÖR (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur)