VIÐBURÐI FRESTAÐ: Samanburður á vinnumarkaðskerfum Norðurlandanna
Hvenær
24. október 2017 12:00 til 13:00
Hvar
Háskólatorg
Ingjaldsstofa, HT-101
Nánar
ATH. Viðburðinum hefur verið frestað
ATH. Viðburðinum hefur verið frestað.
Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands býður upp á opinn hádegisfyrirlestur þriðjudaginn 24. október kl.12:00-13:00 í Ingjaldsstofu HT-101.
Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar, Gylfi Dalmann Aðalsteinsson dósent og Svala Guðmundsdóttir dósent munu fara yfir Norræna samanburðarannsókn á vinnumarkaðskerfum Norðurlandanna.
Í rannsókninni er rýnt í það hvernig löndin hafa hagað vinnumarkaðsaðgerðum og breytingum á vinnumarkaðskerfunum til þess að ná fram markmiðum sínum á sviði vinnumála síðustu árin.
Allir eru velkomnir á fyrirlesturinn.