Sæmundarstund
Aðalbygging
við styttuna af Sæmundi á selnum
Níunda árlega Sæmundarstund fer fram fimmtudaginn 21. mars kl. 11.00 til 11.30, við styttuna af Sæmundi fróða (við Aðalbyggingu Háskólans) og í Bókastofu Aðalbyggingar. Að viðburðinum standa Oddafélagið, Stúdentaráð og Skrifstofa rektors Háskóla Íslands.
Sæmundarstund var fyrst haldin á aldarafmæli Háskóla Íslands árið 2011 að frumkvæði Oddafélagsins, sem er félag áhugamanna um endurreisn fræðaseturs að Odda á Rangárvöllum þar sem Sæmundur fróði bjó. Stundin hefur verið haldin árlega síðan, jafnan á degi sem næst vorjafndægrum.
Þar er lærdómsmannsins og þjóðsagnapersónunnar Sæmundar fróða Sigfússonar minnst en hann var uppi á 11. og 12. öld. Sæmundur fór utan til náms og nam m.a. við skóla í Evrópu áður en hann sneri aftur til Íslands og gerðist prestur að Odda á Rangárvöllum.
Líkt og fyrri ár fer Sæmundarstund fram við styttuna af Sæmundi á selnum, sem stendur í Skeifunni fyrir framan Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Styttuna gerði Ásmundur Sveinsson og vísar hún til frægrar þjóðsögu af viðureign Sæmundar við kölska en samkvæmt þjóðsögunni flutti hann Sæmund heim til Íslands í selslíki. Að lokinni dagskrá verður haldið í Bókastofu Aðalbyggingar þar sem boðið verður upp á kakó og kleinur.
Viðri illa, færist Sæmundarstund inn í anddyri Aðalbyggingar.
Dagskrá
Kl. 11:00
1. Þór Jakobsson, fyrrverandi formaður Oddafélagsins, greinir í örfáum orðum frá sögu og tilgangi Sæmundarstundar.
2. „Kór Sæmundarstundar“. Börn í Leikskólanum Mánagarði syngja tvö lög.
3. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, flytur ávarp.
4. Elísabet Brynjarsdóttir, forseti Stúdentaráðs, flytur ávarp.
5. Börnin í Mánagarði syngja eitt eða tvö lög.
Kl. 11: 30 Sæmundarstund slitið.
Allir velkomnir.
Níunda árlega Sæmundarstund fer fram fimmtudaginn 21. mars kl. 11.00 til 11.30, við styttuna af Sæmundi fróða (við Aðalbyggingu Háskólans) og í Bókastofu Aðalbyggingar.