Rekjanleiki sjávarafurða á bálkakeðju
Hvenær
17. september 2019 15:00 til 16:00
Hvar
VR-II
Stofa 157
Nánar
Aðgangur ókeypis
Hlynur Þór Björnsson flytur erindi á fyrirlestraröðinni Rafmyntir og bálkakeðjur á þriðjudögum. Erindið ber heitið Rekjanleiki sjávarafurða á bálkakeðju.
Hlynur hefur starfað á fjármálamarkaði við áhættu- og eignastýringu undanfarin 15 ár, meðal annars sem deildarstjóri fjárhagsáhættu Valitor hf, forstöðumaður áhættueftirlits Gildis lífeyissjóðs og fyrir það sem sérfræðingur í áhættustýringu hjá Arion banka og fjárstýringu Landsbankans.
Hann stofnaði fyrsta rafmyntafyrirtækið á Íslandi árið 2014 Skiptimynt ehf, sem rekur skiptimarkaðinn isx.is. Hlynur stofnaði einnig Rafmyntaráð Íslands og er stjórnarformaður samtakanna.
Hlynur Þór Björnsson