Skip to main content

Rapp- og (h)ljóðlistarhátíð á Vigdísartorgi

Rapp- og (h)ljóðlistarhátíð á Vigdísartorgi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
16. júní 2018 19:30 til 22:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Vigdísartorg

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis Íslands verður efnt til rapp- og (h)ljóðlistarhátíðar á Vigdísartorgi sunnan við Veröld – hús Vigdísar. Á hátíðinni koma danskir og íslenskir listamenn fram, en áður en rapphátíðin hefst, verða haldnar samræður um rapp sem listform í fyrirlestrarsal Veraldar kl. 18.00-19.30.

Dagskrá: 

Kl. 19.30 – 22.00 
Rapp- og (h)ljóðlistarhátíð á Vigdísartorgi. Fram koma:
• Góði Úlfurinn 
• Georg Ari 
• Anna Vigsø, frá Danmörku
• Gabriel Warén 
• Data Grawlix 
• Dagur Guðna
• Loke Deph og félagar, frá Danmörku
• Úlfhildur Tómasdóttir
• Úlfur Úlfur

Í rappi á sér stað mögnuð nýsköpun á sviði tónlistar og tungumáls, þar sem tvinnast saman veruleiki ungmenna, listsköpun og samfélagsrýni. Á hátíðinni fá áheyrendur að kynnast dönsku og íslensku rappi. Það er námsleið í dönsku og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur sem stendur fyrir hátíðinni.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Facebook viðburður HÉR

Rapp- og (h)ljóðlistarhátíð á Vigdísartorgi

Rapp- og (h)ljóðlistarhátíð á Vigdísartorgi