Ráðstefna um reikningsskil og endurskoðun
Lögberg
L-101
Ráðstefna um reikningsskil og endurskoðun á vegum meistaranáms í reikningsskilum og endurskoðun við Háskóla Íslands verður haldin föstudaginn 23. nóvember frá kl.13:30-17:00 í Lögbergi, L- 101.
Kostnaðar – og fjárhagsáætlanir hins opinbera
13:30-13:40 Opnun ráðstefnu - Dr. Ingi Rúnar Eðvarðsson, deildarforseti Viðskiptafræðideildar.
13:40-14:10 Eftirfylgni, hvað er til ráða?
Einar Guðbjartsson, dósent og forstöðumaður meistaranáms í reikningsskilum og endurskoðun í Viðskiptafræðideild fjallar um áætlanir, gerð og eftirfylgni.
14:10-14:40 Góðir stjórnarhættir
Eyþór Ívar Jónsson, lektor CBS fjallar um samspil áætlana og góðra stjórnarhátta.
14:40-15:00 Viðurkenningar veittar fyrir námsárangur við útskrift á árinu 2018 á vegum Viðskiptafræðideildar og Félags löggiltra endurskoðenda.
15:00-15:30 Kaffihlé
15:30-16:00 Stjórnsýsluendurskoðun - Bjarni Frímann Karlsson, lektor við Viðskiptafræðideild fjallar um áætlanir og stjórnsýsluendurskoðun.
15:30-16:00 Lög og reglur – Trausti Fannar Valsson dósent við Lagadeild fjallar um samspil áætlana og laga.
16:30 - 17:00 Pallborðsumræður og ráðstefnuslit
Viðburðinn er á facebook síðu Viðskiptafræðideildar
Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir
Ráðstefnan er á vegum Viðskiptafræðideildar