Skip to main content

Ráðstefna til heiðurs Ragnari Árnasyni

Ráðstefna til heiðurs Ragnari Árnasyni - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
14. júní 2019 16:00 til 18:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands, Hagfræðideild, Hagfræðistofnun og Rannsóknarsetur um nýsköpun og hagvöxt (RNH) halda alþjóðlega ráðstefnu um fiskihagfræði til heiðurs Ragnari Árnasyni, fyrsta og eina prófessor Háskóla Íslands í fiskihagfræði, föstudaginn 14. júní 2019 í hátíðasal Háskóla Íslands kl. 16–18.

Jón Atli Benediktsson háskólarektor setur ráðstefnuna, en Birgir Þór Runólfsson dósent stjórnar henni. Erindi flytja prófessorarnir Trond Bjorndal, Rögnvaldur Hannesson, Gordon Munro og James Wilen, sem allir eru heimsþekktir fiskihagfræðingar. Umsegjandi er prófessor Corbett Grainger, en einnig er gert ráð fyrir frjálsum umræðum. Ragnar segir nokkur orð í ráðstefnulok. Að ráðstefnunni lokinni verður móttaka á Litla Torgi í Hámu kl. 18–19.

Háskólaútgáfan mun næsta haust gefa út 200 bls. afmælisrit til heiðurs Ragnari, og eru þar endurprentaðar 10 helstu vísindaritgerðir hans. Nefnist ritið Fish, Wealth and Welfare og kostar 6.990 kr. Hér er hægt að skrá sig á Tabula Gratulatoria ritsins.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands, Hagfræðideild, Hagfræðistofnun og Rannsóknarsetur um nýsköpun og hagvöxt (RNH) halda alþjóðlega ráðstefnu um fiskihagfræði til heiðurs Ragnari Árnasyni, fyrsta og eina prófessor Háskóla Íslands í fiskihagfræði, föstudaginn 14. júní 2019 í hátíðasal Háskóla Íslands kl. 16–18.

Ráðstefna til heiður Ragnari Árnasyni