Skip to main content

Pöddulíf í Elliðaárdal - Með fróðleik í fararnesti

Pöddulíf í Elliðaárdal - Með fróðleik í fararnesti - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
11. júní 2020 18:00 til 20:00
Hvar 

Við gömlu rafstöðina við Elliðaár.

Nánar 
Brottför kl. 18 við gömlu rafstöðina við Elliðaár.

Viltu sjá pöddur í návígi? Skordýr eru fjölbreyttasti flokkur dýra á jörðinni og á Íslandi hefur skordýrum fjölgað undanfarin ár af ýmsum ástæðum. Gísli Már Gíslason, skordýrasérfræðingur frá Háskóla Íslands, fræðir okkur um heim skordýranna. Takið með ílát og stækkunargler ef þið eigið.

Gangan er hluti af samstarfsverkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands og Háskóla unga fólksins, Með fróðleik í fararnesti.
Þúsundir Íslendinga á öllum aldri hafa notið þess að halda í göngur með Háskóla Íslands og Ferðafélagi Íslands undanfarin ár og þegið fróðleik í fararnesti frá vísindamönnum og sérfræðingum Háskólans við nánast hvert fótmál. Göngurnar hafa löngu unnið sér fastan sess en með þeim er aukið við þekkingu fólks, ekki síst ungmenna, á sama tíma og boðið er upp á holla og skemmtilega hreyfingu.

Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Ekkert að panta, bara mæta!