Skip to main content

Pallborðsumræður: Erlendar fréttir á Íslandi: Nauðsyn eða munaður?

Pallborðsumræður:  Erlendar fréttir á Íslandi: Nauðsyn eða munaður? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
12. nóvember 2019 16:30 til 17:30
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Fyrirlestrasalur VHV023

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Eiga íslenskir fréttamiðlar að verja takmörkuðum mannafla og fjármunum í að segja fréttir af því sem gerist út í heimi, þegar fólk getur auðveldlega náð sér í fréttir frá helstu miðlum heims á netinu?  Ólöf Ragnarsdóttir, fréttamaður á RÚV, Guðrún Hálfdánardóttir, blaðamaður á mbl.is og Þórir Guðmundsson, fréttastjóri á Stöð 2 taka þátt í pallborðsumræðum um stöðu erlendra frétta hér á landi í Veröld – húsi Vigdísar þann 12. nóvember kl. 16:30. Valgerður Jóhannsdóttir, lektor við stjórnmálafræðideild og umsjónarmaður Blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands, mun stjórna umræðunum.

Pallborðsumræðurnar eru hluti af þriðjudagsfyrirlestraröð Vigdísarstofnunar, en eitt þema haustannarinnar eru fjölmiðlar. Sá hluti er í samstarfi við blaða- og fréttamennsku og fjölmiðla- og boðskiptafræði.

Þriðjudagsfyrirlestrar Vigdísarstofnunar

facebook

Pallborðsumræður: Erlendar fréttir á Íslandi: Nauðsyn eða munaður?

Pallborðsumræður:  Erlendar fréttir á Íslandi: Nauðsyn eða munaður?