Skip to main content

Öld einlyndis og marglyndis. Ráðstefna um fyrirlestra Sigurðar Nordals

Öld einlyndis og marglyndis. Ráðstefna um fyrirlestra Sigurðar Nordals - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
27. apríl 2019 10:00 til 15:15
Hvar 

Hannesarholt

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Ráðstefna í Hannesarholti hinn 27. apríl 2019, kl. 10:00-15:15, um fyrirlestra Sigurðar Nordals Einlyndi og marglyndi í Bárubúð 1918-1919.

Ráðstefnan Öld einlyndis og marglyndis er haldin í þeirri trú að hugtök Sigurðar Nordals einlyndi og marglyndi, og flókið samspil þeirra, geri okkur kleift að hugsa upp á nýtt um áleitnustu deilumál í heimspekilegri sálfræði og siðfræði samtímans en einnig til að skilja hræringar í bókmenntum og menningarlífi Íslands á tuttugustu öld. Sjálfur lítur Nordal á  fyrirlestra sína sem framlag til (heimspekilegrar) sálfræði og þess sem hann kallar „lífernislist“. Fyrirlestrarnir í Bárubúð voru ákaflega vel sóttir á sínum tíma en Sigurður hafði heyjað sér efni í þá á árum fyrri heimstyrjaldarinnar bæði í Þýskalandi og á Bretlandi. Einlynd og marglyndi er heimspekilegur fjársjóður sem á sér engan sinn líkan á Íslandi. 

Á meðal þeirra spurninga sem glímt verður við á ráðstefnunni má nefna:

  • Hvers konar hugtök eru hugtökin einlyndi og marglyndi?
  • Hefur maðurinn eitt heilsteypt sjálf eða er hann ekkert annað en samansafn ólíkra sálarkrafta eða sjálfa?
  • Felst hamingjan í þroska einnar heilsteyptrar persónu og siðferðið í heilindum sjálfsins? Eða er mannleg farsæld eins margbreytileg og siðferðið jafn marglitt og sjálf mannsins eru mörg?
  • Á hvaða mælikvarða metum við árangur þeirrar heimspeki sem Nordal mótar í fyrirlestrum sínum?
  • Hvernig nýtast hugtökin einlyndi og marglyndi við mótun persónulegrar lífsstefnu?
  • Hvernig sér Nordal tengsl bókmennta og heimspeki, lista og siðspeki?
  • Hvaða ljósi varpa fyrirlestrar Nordals á tengsl hans við sálarrannsóknir á Íslandi?
  • Hver voru áhrif fyrirlestra Nordals á íslenska bókmenntasögu?

 

Dagskrá:

10:00-10:30   Salvör Nordal, umboðsmaður barna, „Að vera einlyndur eða marglyndur.“

10:30-11:00   Logi Gunnarsson, prófessor í heimspeki við Háskólann í Potsdam, „Einlyndi og marglyndi: heimspekileg lykilhugtök?“

11:00-11:15   Kaffihlé

11:15-11:45   Róbert H. Haraldsson, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands, „Ríki andans og höll hugans: Mælikvarði Nordals á fyrirlestra sína um einlyndi og marglyndi.“

11:45- 12:15   Ágúst Hjörtur Ingþórsson, sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs Rannís, „Að lifa með einlyndi og marglyndi.“

12:15-13:00   Hádegishlé

13:00-13:30   Jón Karl Helgason, prófessor í íslensku sem annað mál við Háskóla Íslands, „Uppgjörið við natúralismann: Fyrirlestrar Nordals og íslensk bókmenntasaga.“

13:30-14:00   Benedikt Hjartarson, prófessor í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands, „Af ónumdum útjöðrum sálarinnar: Sigurður Nordal og sálarrannsóknir á Íslandi við upphaf 20. aldar.“

14.00-14:15   Kaffihlé

14:15-14:45   Jón Á. Kalmansson, aðjunkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, „Nordal andspænis undrinu.“

14:45-15:15   Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands,  „Menntahugsjón Nordals og áskoranir samtímans.“

Ráðstefnan er haldin með styrk frá Heimspekistofnun Háskóla Íslands.

Sigurður Nordal.

Öld einlyndis og marglyndis. Ráðstefna um fyrirlestra Sigurðar Nordals