Nýnemadagar
Hvenær
5. september 2018 10:00 til 14:00
Hvar
Háskólatorg
Nánar
Öll velkomin
Dagskrá nýnemadaga miðvikudaginn 5. september.
- Tónleikar. Söngkonan GDRN treður upp á sviðinu á Háskólatorgi kl. 12
- Upplýsingaborð fyrir nýnema á Háskólatorgi opið frá kl. 10-14
- Taktu hluta af náminu erlendis - Örkynning Skrifstofu alþjóðasamskipta á tækifærunum í skiptinámi, starfsþjálfun og sumarnámi kl. 12.30-12.50 í stofu HT-300 á Háskólatorgi.
- Örnámskeið í ítölsku fyrir byrjendur í Tungumálamiðstöð, Veröld 231. Kennari, Caterina Poggi. Ekki þarf að skrá sig og öll velkomin
Nýnemar geta einnig tekið þátt í spurningaleik fyrir nýnema í Uglunni þar sem glæsilegir vinningar eru í boði.
Bendum nýnemum á Nýnemavefinn sem er stútfullur af ítarlegum upplýsingum um háskólasamfélagið, fyrstu skrefin í HÍ og þjónustu, einnig leiðbeiningar fyrir nýnema, fróðleikur og margt fleira.
Samfélagsmiðlar
Endilega fylgist með snapchat Háskóla Íslands undir „haskolasnappid“
Einnig má fylgjast með Háskólanum á Facebook, Twitter, Instagram og YouTube.
Söngkonan GDRN verður með tónleika á sviðinu á Háskólatorgi kl. 12 miðvikudaginn 5. september á nýnemadögum.