Skip to main content

Móttaka nýnema á Hugvísindasviði 2018

Móttaka nýnema á Hugvísindasviði 2018 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
24. ágúst 2018 13:00 til 15:00
Hvar 

Háskólatorg

Stofa 102

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Nýnemum við Hugvísindasvið er boðið á kynningarfund föstudaginn 24. ágúst kl. 13:00. Að loknum kynningarfundi í stofu 102 á Háskólatorgi verða kynningarfundir í námsgreinum kl. 14:00. Þar verður greint frá námstilhögun og veittar nánari upplýsingar um nám í viðkomandi greinum.

Dagskrá fundarins kl. 13:00:

  • Ávarp Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands.
  • Kynning á Hugvísindasviði. Guðmundur Hálfdanarson, forseti Hugvísindasviðs.
  • Stutt kynning á deildum.
    - Oddný G. Sverrisdóttir, forseti Mála- og menningardeildar.
    - Rúnar Már Þorsteinsson, forseti Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar.
    - Torfi H. Tulinius, forseti Íslensku- og menningardeildar.
    - Steinunn J. Kristjánsdóttir, forseti Sagnfræði- og heimspekideildar.
  • Kynning á Uglu – innri vef HÍ. Haukur Jóhann Hálfdánarson kerfisfræðingur.

Kennsla hefst mánudaginn 27. ágúst samkvæmt stundaskrá. Sama dag hefjast nýnemadagar Háskóla Íslands en þar verður boðið upp á gönguferðir um háskólasvæðið, kynningar á þjónustu og skemmtidagskrá. 

Á nýnemavef Háskóla Íslands, vef Stúdentaráðs, og á vef Hugvísindasviðs, eru gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema um námið og skólann, þar á meðal drög að stundaskrám. Ef nýnemar hafa einhverjar spurningar um námið er hægt að hafa samband við starfsfólk á skrifstofu í síma 525 4400, senda tölvupóst á hug@hi.is eða koma við á skrifstofu sviðsins í Aðalbyggingu (3. hæð); hún er opin kl. 10-12 og 13-15 virka daga.

Kynningarfundir í námsgreinum 14:00

Mála- og menningardeild:

  • Spænska - Lögberg stofa 103
  • Ítalska - Veröld stofa 227
  • Kínversk fræði - Veröld stofa 108
  • Gríska og latína - Veröld stofa 207
  • Frönsk fræði - Veröld stofa 103
  • Japanskt mál og menning - Árnagarður stofa 311
  • Enska - Háskólatorg stofa 104
  • Þýska - Veröld stofa 107
  • Danska - Veröld stofa 228
  • Sænska - Veröld stofa 222
  • Rússneska - Veröld stofa 104

Guðfræði- og trúarbragðafræðideild:

  • Guðfræði - Aðalbygging stofa 229

Íslensku- og menningardeild:

  • Listfræði - Árnagarður stofa 101
  • Íslenska - Árnagarður stofa 201
  • Almenn málvísindi og táknmálsfræði - Aðalbygging 051
  • Almenn bókmenntafræði - Aðalbygging stofa 050
  • Kvikmyndafræði - Aðalbygging stofa 052

Sagnfræði- og heimspekideild:

  • Fornleifafræði - Aðalbygging stofa 069
  • Sagnfræði - Árnagarður stofa 301