Skip to main content

Minningar barns um Helförina

Minningar barns um Helförina  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
22. mars 2019 11:30 til 13:00
Hvar 

Iðnó

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Hádegisverðafundur

Minningar barns um Helförina

Iðnó, 22. mars kl. 11:30-13:00

Félags- og barnamálaráðherra og Mobilities and Transnational Iceland boða til hádegisverðafundar með Andras Hamori. Þar mun Andras deila reynslu sinni og fjölskyldu sinnar úr seinni heimsstyrjöldinni en hann er gyðingur af ungverskum ættum og upplifði í síðari heimsstyrjöldinni, líkt og svo margir aðrir, ólýsanlegan hrylling Helfararinnar, skipulögð og miskunnarlaus fjöldamorð nasista á evrópskum gyðingum. Á nokkra vikna tímabili vorið 1944 er talið að um fjögur hundruð þúsund manns hafi verið flutt nauðug frá Ungverjalandi í útrýmingar- og þrælkunarbúðir nasista, þar á meðal fjölskylda Andras sem áttu þaðan ekki afturkvæmt. Lífi Andrasar, sem þá var aðeins barn að aldri, og þúsunda annarra gyðinga í Ungverjalandi var bjargað af Raoul Wallenberg, sænskum stjórnarerindreka sem útvegaði þeim sænskt vegabréf þegar Þjóðverjar höfðu tekið öll völd í Ungverjalandi. Andras flúði að lokum yfir til Austuríkis og fékk vernd sem flóttamaður í Bandaríkjunum þar sem hann hefur búið síðan. Saga Andras og fjölskyldu hans er saga flóttafólks, sorgir þess, vonir og sigra. Hann á ennþá lífsbjörg sína, skjölin frá Raoul Wallenberg, bréf móður sinnar og ömmu úr Auschwitz og sárin á sálinni sem aldrei gróa. Þetta eru sögur sem aldrei mega gleymast.

Dagskrá:

11:30–11:35 Boðið upp á léttan hádegisverð

11:35-11:40 Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra flytur opnunarávarp

11:40-11:45 Unnur Dís Skaptadóttir, prófessor við Háskóla Íslands

11:45-12:25 Andras Hamori, Tragedy and Survival: My life in Hungary from 1944-1956

12:25-12:50 Morten Kjærum, framkvæmdastjóri Raoul Wallenberg Institute

12:50-13:00 Kristín S. Hjálmtýrsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi flytur lokaorð.

Hádegisverðafundurinn fer fram á ensku og er opinn öllum.

Takmarkaður fjöldi sæta. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á netfangið postur@frn.is