Skip to main content

Meistarafyrirlestur í umhverfisverkfræði - Bryndís Tryggvadóttir

Meistarafyrirlestur í umhverfisverkfræði - Bryndís Tryggvadóttir - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
16. janúar 2020 12:30 til 14:00
Hvar 

VR-II

Stofa 261

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Meistaranemi: Bryndís Tryggvadóttir

Heiti verkefnis: Mat á aftaka sjávarflóðum - Innleiðing aðferðar sem byggist á samlíkum útgilda

___________________________________________

Deild: Umhverfis- og byggingarverkfræðideild 

Leiðbeinendur: 
Hrund Ólöf Andradóttir, prófessor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands.
Sigurður Sigurðarson, verkfræðingur hjá Vegagerðinni.
Birgir Hrafnkelsson, prófessor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands.

Prófdómari: Helgi Gunnarsson, verkfræðingur hjá Vegagerðinni.

Ágrip

Samfélögum sem búa nærri sjó stafar stöðug ógn af sjávarflóðum og sú ógn eykst með hækkandi yfirborði sjávar. Áreiðanlegt mat á flóðahættu er nauðsynlegt svo hægt sé að takmarka hættuna eins mikið og unnt er. Markmið þessa verkefnis er að innleiða aðferð við mat á sjávarflóðahættu sem byggist á samlíkum þeirra þátta sem knýja sjávarflóð. Notuð var Monte Carlo hermun ásamt greiningu á samlíkum þátta til að útbúa stórt gagnasafn af aftaka atburðum í úthafi sem nær yfir u.þ.b. 10.000 ár og byggist á 35 ára langri tímaröð af öldu-, vind- og sjávarfallamælingum.
Þessi aðferð tryggir að samlíkur á vindi, öldu og sjávarföllum haldist þegar ýktir atburðir eru hermdir, en það hefur þótt vanta í aðrar aðferðir sem hafa hingað til verið notaðar. Að nota MIKE 21 SW öldulíkan til að færa alla hermdu atburðina frá úthafi nær ströndinni er bæði tímafrek og þung keyrsla. Því var lítill hluti af atburðunum keyrður í gegnum MIKE 21 SW og niðurstöðurnar notaðar til að stilla af meta model sem síðan var notað til að færa alla atburðina nær ströndinni. Þá voru niðurstöðurnar notaðar til að meta líkur á sjávarflóðum með því að áætla ágjöf yfir sjóvarnarmannvirki á land, bæði fyrir núverandi ástand og með hærra sjávaryfirborð, fyrir 6 staði á stórhöfuðborgarsvæðinu og Akranesi. Niðurstöður verkefnisins eru grundvöllur fyrir því að hægt sé að nota þessa aðferð víðsvegar um landið þar sem þörf er á mati á sjávarflóðhættu.