Meistarafyrirlestur í iðnaðarverkfræði - Birgir Blöndahl Arngrímsson
Fyrirlesturinn verður á Zoom:
https://eu01web.zoom.us/j/63640711928
Meistaranemi: Birgir Blöndahl Arngrímsson
Heiti verkefnis: Val á þjónustuaðilum í aðfangakeðju BYKO
___________________________________________
Deild: Iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði og tölvunarfræðideild
Leiðbeinandi: Gunnar Stefánsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði og tölvunarfræðideild
Einnig í meistaranefnd: Kristján M. Ólafsson
Prófdómari: Sveinn Víkingur Árnason, framkvæmdarstjóri vörudreifingar hjá ÁTVR
Ágrip
Markmið verkefnisins er að meta hvort breytingar á aðfangakeðju BYKO muni leiða til sparnaðar í vöruhúsa- og flutningastarfsemi fyrirtækisins. BYKO er byggingarvöruverslun sem úthýsir miklum hluta innflutningsstarfsemi sinnar til þriðja aðila. Lagt er upp með breytingar sem snúast um að endurmeta samstarfsaðila BYKO með tilliti til vöruhúsa- og flutningastarfsemi. Aðfangakeðja BYKO verður teiknuð upp samkvæmt BPMN aðferðafræðinni. Greining á vöruhúsa- og flutningastarfsemi BYKO verður gerð og grundvöllur til þess að hefja samstarf við nýja samstarfsfélaga metinn. Til þess að framkvæma vöruhúsagreiningu þarf að gera greiningu á sjóflutningum með tilliti til flutningstíma. Gögnum um verkefnið verður safnað í gegnum óformleg viðtöl, vinnustofur, söguleg gögn og skjöl frá BYKO. Niðurstöður verkefnisins gefa til kynna að umræddar breytingar muni leiða til sparnaðar í aðfangakeðju BYKO. Breytingar á samstarfsaðilum og aðfangakeðju BYKO geta haft ýmsar afleiðingar í för með sér, svo sem aukið flækjustig í birgðastýringu og innkaupum. Þrátt fyrir jákvæðar niðurstöður verkefnisins, er ákvörðun um breytingar á samstarfsaðilum margþætt og ber að skoða vandlega.