Skip to main content

Meistarafyrirlestur í byggingarverkfræði - Ingvar Hjartarsson

Meistarafyrirlestur í byggingarverkfræði - Ingvar Hjartarsson - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
9. apríl 2019 15:00 til 16:30
Hvar 

VR-II

Stofa 156

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Meistaranemi: Ingvar Hjartarsson

Heiti verkefnis: Jarðskjálftavarnir fyrir stagbrú á Ölfusá við Efri Laugardælaeyju

___________________________________________

Deild: Umhverfis- og byggingarverkfræðideild

Leiðbeinendur: Bjarni Bessason og Arnar Björn Björnsson

Prófdómari: Guðmundur Valur Guðmundsson, forstöðumaður hönnunardeildar hjá Vegagerðinni

Ágrip

Á undanförnum áratugum hefur mikil þróun verið á jarðskjálftabúnaði til að verja brýr. Á Íslandi hafa blýgúmmílegur fyrst og fremst verið notaðar í þessum sambandi og ákveðin reynsla er komin á þær. Í þessari ritgerð er fókusinn settur á stagbrýr. Fyrst er fjallað um hönnun erlendra stagbrúa á þekktum jarðskjálftasvæðum. Í framhaldinu er fyrirhuguð stagbrú yfir Ölfusá við Efri Laugardælaeyju skoðuð nánar. Brúin er fyrsta sinnar hér á landi og því er ekki sjálfsagt að blýgúmmílegur reynist ákjósanlegar við jarðskjálftavarnir. Mannvirkið verður staðsett á þverbrotabelti Suðurlands og þarf að vera hönnuð fyrir nærsprunguáhrifum sem hafa greinst í jarðskjálftum þar. Slík áhrif einkennast af kröftugum lágtíðni hraðapúlsi á svæðum sem liggja nálægt upptökum jarðskjálfta. Þau eru einkum hættuleg mannvirkjum með langan eiginsveiflutíma, sem er eitt af einkennum stagbrúa. Í verkefninu voru skráðar jarðskjálftatímaraðir á Suðurlandi keyrðar á reiknilíkan af stagbrúnni yfir Ölfusá og ávinningur af notkun blýgúmmílega skoðaður. Niðurstöður benda til blýgúmmílegurnar séu skilvirkari í þveráttina heldur en langáttina þar sem miklar færslur brúargólfsins í langáttina valda miklu álagi á turninn.

Ingvar Hjartarsson

Meistarafyrirlestur í byggingarverkfræði - Ingvar Hjartarsson