Skip to main content

Málvísindakaffi: Kennsla íslensku sem annars máls

Málvísindakaffi: Kennsla íslensku sem annars máls - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
9. desember 2022 12:00 til 13:00
Hvar 

Lögberg

Stofa 205

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Lemme Linda Saukas Olafsdóttir flytur erindi á Málvísindakaffi í stofu 205 í Lögbergi föstudaginn 9. desember kl. 12-13. Erindið ber yfirskriftina Að kenna íslensku sem annað mál með aðferðum tónlistar og leiklistar og byggir á MA-verkefni hennar. 

Útdráttur:

Útgangspunkturinn í MA-verkefninu var íslenskunámskeið fyrir byrjendur sem ég kenndi sumarið 2018. Í kennslunni voru bæði notaðar aðferðir sem kalla má hefðbundnar í tungumálakennslu en í ríkum mæli einnig aðferðir sem helst tíðkast í tónlistar- og leiklistarkennslu, jafnvel í danskennslu. Tekið var upp myndband á meðan á námskeiðinu stóð og skrifaðar dagbókarfærslu eftir hvern kennslutíma. Á myndbandinu fékk áhorfandi nasasjón af þjálfunaraðferðunum sem voru notaðar á námskeiðinu, vonandi líka smá innsýn í aðferðirnar sjálfar. Einnig var hægt er að fylgjast með framförum málnemanna og skyggnast inn í hugarheim þeirra. Lögð voru drög að kennsluáætlun áður en námskeiðið hófst en hún var höfð opin, frekar eins og áttaviti til að rata á víðavangi en fyrirfram skorðuð braut enda átti námskeiðið að vera meðal annars leit að nýrri þekkingu bæði fyrir kennarann og nemendurna.

Í fræðilegum hluta ritgerðarinnar var stiklað á ýmsum kenningum, tilgátum og hugleiðingum fræðimanna til nánari glöggvunar á máltileinkunarferlinu, námssálfræði, taugafræði og starfsemi mannsheilans. Bornar voru saman eldri kenningar um máltileinkun og nýrri vitneskju úr heilarannsóknum á 21. öldinni og bent á hvernig nýlegri rannsóknir geta bætt þekkingu okkar og hvatt okkur jafnvel til að endurmeta afstöðu okkar til máltileinkunar. Á grundvelli minnar eigin reynslu sem tungumálakennari og málnemi, auk þess ýmissa eldri og nýlegri fræðikenninga, þróaði ég aðferðir sem kynntar voru í umræddri MA-ritgerð.

Lemme Linda Saukas Olafsdóttir.

Málvísindakaffi: Kennsla íslensku sem annars máls