Málþing meistaranema í félagsráðgjöf til starfsréttinda
Zoom
Á málþinginu munu kandidatar kynna niðurstöður MA rannsóknarverkefna sinna. Hátíðin verður haldin í streymi á Zoom.
Öll velkomin.
Sjá nánar meðfylgjandi dagskrá:
09:00 Guðný Björk Eydal, deildarforseti: ávarp.
09:15 Alda Björt Gísladóttir. „Það vantar bara svo að gefa manni tækifæri“ Reynsla og upplifun kvótaflóttafólks sem komið hefur til Íslands á vegum Reykjavíkurborgar af atvinnumarkaðnum
Leiðbeinandi Guðbjörg Ottósdóttir
09:30 Karen Magnúsdóttir. Aldraðir innflytjendur: Umfang og örlæti laga er varða réttindi til ellilífeyris og fjárhagsaðstoðar Leiðbeinandi Guðbjörg Ottósdóttir og Margrét S. Jónsdóttir
09:45 Guðrún Ósk Gunnarsdóttir. Mál barna ef erlendum uppruna hjá Barnavernd Reykjavíkur. Leiðbeinandi Guðbjörg Ottósdóttir
10:00 Bryndís Björg Einarsdóttir. Menningarnæmi í barnavernd. Leiðbeinandi Halldór S. Guðmundsson
10:15 Hildur Rán Andrésdóttir. Viðhorf barnaverndarstarfsmanna til þátttöku barna. Leiðbeinandi Hervör Alma Árnadóttir
10:30 Kaffi
11:00 Thelma Rut Guðmundsdóttir. Tilkynningar til barnaverndaryfirvalda: Samræmi á meðal fulltrúa nemendaverndarráða. Leiðbeinendur Freydís Jóna Freysteinsdóttir og Chien Tai Shill
11:15 Dagbjört Steinarsdóttir. „Þetta var engin meðferð, bara hvíld fyrir okkur“. Upplifun og reynsla foreldra unglinga með vímuefnavanda á úrræðum og stuðningi. Leiðbeinandi Jóna Margrét Ólafsdóttir
11:30 Steinunn Katla Sævarsdóttir. „Hann er með miklu, miklu hærri laun en ég“. Þættir sem hafa áhrif á hvernig foreldrar haga fæðingarorlofi. Leiðbeinandi Guðný Björk Eydal
11:45 Ingibjörg Eyþórsdóttir. Réttur einstaklinga til fjárhagsaðstoðar frá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu: Reglur og upphæðir. Leiðbeinandi Guðný Björk Eydal
Málstofa II Tengill: https:/eu01web.zoom.us/j/67205621168
9:15 Alexander Björn Gunnarsson. Viðbrögð heilbrigðisstarfsfólks við grun um ofbeldi í nánum samböndum hjá skjólstæðingum. Leiðbeinandi Freydís Jóna Freysteinsdóttir
9:30 Þórunn Birna Jónsdóttir. Skaðleg áhrif kláms á kynferðisofbeldi í nánum samböndum ungmenna. Leiðbeinandi Freydís Jóna Freysteinsdóttir
9:45 Ágústa Sól Pálsdóttir. Lögræði einstaklinga með geðraskanir: Með hliðsjón af síðari breytingum lögræðislaga - lögum nr. 84/2015. Leiðbeinandi Þór Garðar Þórarinsson
10:00 Tara Ósk Jóhannsdóttir. „Þetta er eins og eitt stórt heimili“: Áhrif, reynsla og upplifun einstaklinga sem lokið hafa vímuefnameðferð Samhjálpar í Hlaðgerðarkoti. Leiðbeinandi Steinunn Hrafnsdóttir
10:15 Alma Rut Þorleifsdóttir. "Mér líður svo oft eins og fólk upplifi mig skítuga": Upplifun og reynsla einstaklinga sem eru heimilislausir með vímuefnavanda af þjónustu og viðmóti félagsráðgjafa. Leiðbeinandi Jóna Margrét Ólafsdóttir
10:30 Kaffi
11:00 Alexandra Elísa Gunnarsdóttir. Börn sem aðstandendur foreldra með krabbamein: Er barn á heimilinu? Leiðbeinendur Helga Sól Ólafsdóttir og Anna Rós Jóhannesdóttir
11:15 Steinunn Pétursdóttir. Börn sem aðstandendur: Börn sem eiga foreldri með geðsjúkdóm. Leiðbeinandi Helga Sól Ólafsdóttir og Anna Rós Jóhannesdóttir
11:30 Stefanía Chan. Afdrif barna sem hafa misst foreldri í æsku: Forrannsókn á sálfélagslegum afleiðingum þess fyrir barn að missa foreldri úr krabbameini. Leiðbeinandi Hrefna Ólafsdóttir
10:45 Rakel Ýr Waage. „Það er enginn að fara að vinna þetta einn“: Upplifun og reynsla foreldra fatlaðra barna með fjölþættan vanda af heildstæðri þjónustu. Leiðbeinendur Anna Sigrún Ingimarsdóttir og Hervör Alma Árnadóttir
9:15 Berglind Magnúsdóttir. Náttúran græðir og grætur með mér: Áhrif náttúru á streitu. Leiðbeinendur Hervör Alma Árnadóttir og Halldór S. Guðmundsson
9:30 Íris Lana Birgisdóttir. „Seigla er eins og andleg hryggsúla“: Upplifun félagsráðgjafa af seiglu í starfi og hvernig hægt er að stuðla að aukinni seiglu. Leiðbeinandi Steinunn Hrafnsdóttir
9:45 Hulda Haraldsdóttir. Upplifun félagsráðgjafa á streitu og kulnun: "Ég var alltaf að hlaupa og ég sjálf var alltaf í síðasta sæti". Leiðbeinendur Ásta Snorradóttir og Steinunn Hrafnsdóttir
10:00 Matthildur Björg Bjarnadóttir. Kulnun og tengsl hennar við vinnutengda þætti í starfi félagsráðgjafa á Íslandi. Leiðbeinendur Ásta Snorradóttir og Steinunn Hrafnsdóttir
10:15 Sólrún Sif Guðmundsdóttir. „Tvíeggja sverð“ Reynsla aðstandenda af flutningi aldraðra á hjúkrunarheimili og viðhorf þeirra til aðgerða vegna Covid-19. Leiðbeinandi Sigurveig H. Sigurðardóttir
10:30 Kaffi
11:00 Karen Birna Ómarsdóttir. Að búa með heilabilun: Reynsla einstaklinga sem sinna maka með heilabilun. Leiðbeinandi Sigurveig H. Sigurðardóttir og Sirrý Sif Sigurlaugardóttir
11:15 Margrét Einarsdóttir. Stuðningur við aðstandendur aldraðra: Reynsla uppkominna barna af umönnun foreldra. Leiðbeinandi Sigurveig H. Sigurðardóttir
11:30 Hörn Ragnarsdóttir. „Það er aðalhlutverk og aukahlutverk í ferlinu“: Upplifun feðra af fósturláti á öðrum hluta meðgöngu. Leiðbeinandi Helga Sól Ólafsdóttir
11:45 Sigrún Eygló Fuller. "Þú átt allt öðruvísi heimili en aðrir": Upplifun og reynsla feðra sem eiga börn á einhverfurófi. Leiðbeinendur Steinunn Hrafnsdóttir og Guðrún Þorsteinsdóttir
Málþing meistaranema í félagsráðgjöf til starfsréttinda