Skip to main content

Málþing meistaranema

Málþing meistaranema - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
30. janúar 2020 12:30 til 16:10
Hvar 

Stakkahlíð, K-102 og K-103

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Meistaranemar kynna lokaverkefni sín á málþingi

Fjölbreyttar rannsóknir á sviði menntavísinda verða kynntar á málþingi meistaranema við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. M.Ed.- og MA-útskriftarnemar munu þar flytja stuttar kynningar á lokaverkefnum sínum í sex málstofum.

Meðal þess sem fjallað verður um er námsefni í umhverfisfræði og sögu, líðan nemenda og einelti, heimanám, hegðunarerfiðleika, útiveru og tölvuleikjaspilun ungmenna. Enn fremur verður fjallað um reynslu erlendra foreldra af móttöku og aðlögun barna sinna á leikskóla, reynslu starfsfólks með íslensku sem annað mál af því að hefja störf á leikskóla og reynsla hvítra íslenska mæðra af uppeldi barna sinna af blönduðum uppruna. 

Töluverð aukin aðsókn hefur verið í framhaldsnám við Menntavísindasvið undanfarin ár en sviðið menntar leik-, grunn- og framhaldsskólakennara, uppeldis- og menntunarfræðinga, íþrótta- og heilsufræðinga, tómstunda- og félagsmálafræðinga auk þroskaþjálfa.

Ókeypis er á málþingið og öllum opið. 