Skip to main content

Málstofa um dóm Mannréttindadómstóls Evrópu vegna skipunar dómara við Landsrétt

Málstofa um dóm Mannréttindadómstóls Evrópu vegna skipunar dómara við Landsrétt - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
20. mars 2019 12:00 til 13:00
Hvar 

Askja

N-132

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Lagastofnun Háskóla Íslands efnir til málstofu miðvikudaginn 20. mars nk. kl. 12:00 í Öskju, Háskóla Íslands, stofu N-132, í tilefni af dómi Mannréttindadómstóls Evrópu 12. mars.

Bein útsending frá málstofunni

Í dóminum var komist að þeirri niðurstöðu að skipun dómara við Landsrétt hafi ekki samræmst kröfum 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu um að skipan dómstóls skuli ákveðin með lögum. Á málstofunni munu framsögumenn ræða efni dómsins og eftirmála hans hér á landi.

Framsögumenn: Davíð Þór Björgvinsson dómari í Landsrétti, Björg Thorarensen prófessor, Trausti Fannar Valsson dósent, Kristín Benediktsdóttir dósent og Ingibjörg Þorsteinsdóttir héraðsdómari og formaður dómarafélagsins.