Málstofa MA-nema í uppeldis- og menntunarfræði
Stakkahlíð / Háteigsvegur
H-209
Fimmtudaginn 11. apríl kynna fjórir meistaranemar lokaverkefni sín í uppeldis- og menntunarfræði. Kynningar og umræður í málstofum eru þáttur í vinnu nemenda við rannsóknarverkefni til MA-prófs.
MA-málstofur eru opnar öllum nemendum og starfsfólki Menntavísindasviðs – meistaranemar og leiðbeinendur meistaranema eru sérstaklega hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum um verkefnin.
Fundarstjóri: Jóhanna Karitas Traustadóttir
Dagskrá:
Kl. 13.00–13.40 - Björg Kristín Ragnarsdóttir, uppeldis- og menntunarfræði (Sálfræði í uppeldis- og menntavísindum)
Það þarf svo sterk bein til að vera kennari: Velfarnaður grunnskólakennara.
Leiðbeinendur: Ingibjörg V. Kaldalóns og Amalía Björnsdóttir
Kl. 13.45–14.25 - Ingimundur Óskar Jónsson, uppeldis- og menntunarfræði (Áhættuhegðun og velferð ungmenna)
Tölvuleikir, líf og velferð: Skugginn af tölvuleikjaspilun ungmenna
Leiðbeinandi: Skúlína Hlíf Kjartansdóttir
Kl. 14.30–15.15 - Jónína Margrét Sigurðardóttir, uppeldis- og menntunarfræði (Áhættuhegðun og velferð ungmenna)
Áhrif stimplunar á möguleika ungra kvenkyns vímefnaneytenda til þess að verða edrú
Leiðbeinandi: Ragný Þóra Guðjohnsen
Kl. 15.20–15.50 - Laufey Erlendsdóttir, uppeldis- og menntunarfræði (Sálfræði í uppeldis- og menntavísindum)
"Seigla og velferð barna og ungmenna
UPRIGHT verkefnið og leiðir til að efla seiglu"
Leiðbeinandi: Ingibjörg V. Kaldalóns