Skip to main content

Málstofa: Handleiðsla til eflingar í starfi

Málstofa: Handleiðsla til eflingar í starfi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
27. nóvember 2020 12:00 til 13:00
Hvar 

Zoom

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Málstofa á vegum Félagsráðgjafardeildar og Rannsóknarstofnunar í barna- og fjölskylduvernd. Málstofan fer fram í stofu VHV-007 og í streymi á Zoom.

Smellið hér fyrir hlekk á streymi.

Í málstofunni verður fjallað um bókina Handleiðsla til eflingar í starfi, útg. Háskólaútgáfan og RBF; Rannsóknarstofnun í barna- og fjölskylduvernd.

Sautján sérfræðingar úr ólíkum faghópum um handleiðslu innan velferðarþjónustu og vinnumarkaðar eru höfundar kaflanna í bókinni en henni er ritstýrt af dr. Sigrúnu Júlíusdóttur, prófessor emerítus við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands.

Dr. Sigrún kynnir meginefni bókarinnar en rýni veitir Ella Kristín Karlsdóttir félagsráðgjafi MA og formaður Handleiðslufélags Íslands. Bókin er sú fyrsta sinnar tegundar á íslensku og fjallar um fjölbreyttar hliðar handleiðsluferlisins, samskipta og stjórnunar með áherslu á forvarnargildi handleiðslu gegn stöðunun og starfsþroti. Í bókinni er einnig fjallað um gagnreyndar aðferðir í faghandleiðslu og hvernig handleiðarar geta veitt öðrum styrk og eflt frumkvæði þeirra og færni. Bókinni er ætlað að bæta úr brýnni þörf fyrir fræðirit á sviði faghandleiðslu og getur nýst fagfólki, háskólanemum, yfirmönnum og stjórnendum stofnanna og fyrirtækja. Faghandleiðsla varðar þróunarferil og þroska fagmanns þar sem markmiðið er að hann öðlist hæfni og matsfærni og nái fullum tökum á faglegum viðfangsefnum með því að beita gagnreyndum aðferðum. Handleiðsla eykur seiglu og vitund um mörk til að geta aðgreint starf og einkalíf og varist ofurkröfum. Á fullnaðarstigi fagþroskans getur handleiðari veitt öðrum styrk og eflt frumkvæði þeirra og færni. Þannig stuðlar hann að valdeflingu og starfsgleði fagmannsins.

Dr. Sigrúnu Júlíusdóttur, prófessor emerítus við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands.

Málstofa: Handleiðsla til eflingar í starfi