Lokaverkefni í grunnnámi - vinnustofa
Hvenær
20. september 2021 13:00 til 14:30
Hvar
Fjarnámskeið á Teams
Nánar
Aðgangur ókeypis
Náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands býður upp á stutt námskeið fyrir nemendur í grunnnámi sem eru að hefja vinnu við að skrifa lokaverkefni sín. Farið verður yfir gagnleg atriði og ábendingar um vinnuferlið við skrifin.
Þetta fjarnámskeið verður haldið mánudaginn 20. september kl. 13:00 - 14:30 á Teams.
Aðeins 15 pláss eru í boði og því er nauðsynlegt að skrá sig hér.