Skip to main content

Leiðsögn listamanna og kynning á Banff listamiðstöðinni

Leiðsögn listamanna og kynning á Banff listamiðstöðinni - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
16. október 2019 16:00 til 17:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Vigdísarstofa, 1. hæð

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Leiðsögn um sýninguna Vistabönd og kynning á Banff listamiðstöðinni verður haldin í Veröld – húsi Vigdísar þann 16. október. Kynningin hefst í Vigdísarstofu á 1. hæð kl. 16.

Birna Bjarnadóttir, verkefnisstjóri hjá Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur, mun kynna Banff listamiðstöðina í Alberta í Kanada. Eitt meginviðfangsefna Birnu tengist samstarfi Háskóla Íslands við Vesturheim, og hún verður nýkomin úr heimsókn til Banff listamiðstöðvarinnar.

Listamennirnir Karlotta Blöndal, Ragnar Kjartansson og Unnar Örn munu ræða um verkin sín og tengingu sína við Banff listamiðstöðina. Þau, líkt og aðrir listamenn sem taka þátt í sýningunni, eiga það sameiginlegt að tengjast miðstöðinni. Þau hafa dvalið þar í vinnustofum eða verk þeirra verið flutt þar.

Sýningin Vistabönd var opnuð í Veröld – húsi Vigdísar í ágúst síðastliðnum og hún stendur til 28. október næstkomandi. Þó verkin á sýningunni endurspegli ólík viðfangsefni listamannanna má finna þar sterk tengsl manns og náttúru. Ólíkir staðhættir verða uppspretta fyrir list sem finnur sér stað í fjölbreyttum miðlum en á sýningunni eru myndir, texti og tónverk.

Sýningin er opin alla virka daga kl. 9-17.

Nánar um sýninguna og listamennina.

facebook

Leiðsögn um sýninguna Vistabönd og kynning á Banff listamiðstöðinni verður haldin í Veröld – húsi Vigdísar þann 16. október.

Leiðsögn listamanna og kynning á Banff listamiðstöðinni