Skip to main content

Leiðbeinendur doktorsnemenda, námskeið og vinnustofa

Leiðbeinendur doktorsnemenda, námskeið og vinnustofa - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
3. desember 2018 13:00 til 15:30
Hvar 

Háskólatorg

HT-300

Nánar 
Skráning

Skráning er á heimasíðu Kennslumiðstöðvar

Námskeið og vinnustofa fyrir leiðbeinendur doktorsnema við Háskóla Íslands verða haldin á haustdögum 2018. Lögð er áhersla á reglur um doktorsnám, hlutverk leiðbeinanda og doktorsnema og samskipti í leiðbeiningarferlinu. Námskeiðin eru á vegum Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands, Miðstöðvar framhaldsnáms og fræðasviða Háskóla Íslands.

Um er að ræða námskeið og vinnustofu, annars vegar, I. Reglur og viðmið um doktorsnám, sem er rafrænt námskeið á vef sem þátttakendur geta tekið þegar þeim hentar. Hins vegar vinnustofuna II. Hlutverk og samskipti leiðbeinanda og doktorsnema, sem haldin verður mánudaginn 3. desember kl. 13:00-15:30, Rafræna námskeiðið er undanfari vinnustofunnar.

Námskeiðið og vinnustofan eru á íslensku en innan skamms verður boðið upp á þau á ensku.

I. Reglur og viðmið um doktorsnám

Námskeiðið er á rafrænu formi verður hægt að nálgast það u.þ.b. tíu dögum fyrir vinnustofu. Þátttakendur þurfa að hafa lokið námskeiðinu áður en þeir sækja vinnustofuna 3. des. 2018.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur kynnist þeim kröfum og viðmiðum sem Háskóli Íslands setur fyrir doktorsnema og doktorsvarnir, ásamt hlutverki og skyldum leiðbeinanda.

Hæfniviðmið:

Að námskeiði loknu getur þátttakandi:

  • gert grein fyrir helstu almennu reglum háskólaráðs um doktorsnám og um vörn doktorsritgerða, s.s. varðandi styrkjakerfi, höfundarétt og eignarétt og siðfræði vísinda
  • skilgreint helstu viðmið og kröfur Háskóla Íslands um gæði doktorsnáms, þar á meðal almenn, fagleg og efnisleg viðmið sinnar deildar
  • nýtt sér helstu reglur ráðuneytis og Háskóla Íslands í hagnýtum/stjórnsýslulegum samskiptum stofnunar, nemanda og leiðbeinanda
  • útskýrt hlutverk Miðstöðvar framhaldsnáms vegna doktorsnáms
  • lýst ferli kvartana og kærumála sem upp geta komið vegna doktorsnema

II. Hlutverk og samskipti leiðbeinanda og doktorsnema

Stund: mán. 3. des., kl. 13:00-15:30
Staður: Háskólatorg, HT-300
Forkröfur: Mikilvægt er að þátttakendur hafi lokið rafrænu námskeiði Reglur og viðmið um doktorsnám.

Skráning á vinnustofuna er hér á síðunni.

Markmið vinnustofunnar er að undirbúa þátttakendur fyrir starf leiðbeinanda doktorsnema með því gefa innsýn inn í þá ábyrgð og skyldur sem leiðbeiningunni fylgir. Lögð er áhersla á grundvöll góðra samskipta og uppbyggingu trausts. Þátttakendur fá tækifæri til að ræða ýmsar hliðar þessa hlutverks og þær áskoranir sem starfinu fylgja.

Að námskeiði loknu getur þátttakandi:

  • skilgreint hlutverk, skyldur og ábyrgð nemenda
  • skilgreint hlutverk, skyldur og ábyrgð leiðbeinanda
  • lýst þeim eiginleikum sem einkenna góðan leiðbeinanda í huga nemandans skv. rannsóknum
  • útskýrt hvernig best sé að setja mörk, t.d. tímamörk, vegna leiðbeiningar
  • gert grein fyrir því hvernig traust myndast milli leiðbeinanda og nemanda
  • beitt aðferðum til að leysa ágreining

Leiðbeinendur doktorsnema

Leiðbeinendur doktorsnemenda, námskeið og vinnustofa