Skip to main content

Lærum með leiðtogum - Þorsteinn V. Einarsson: Leikreglur karlmennskunnar

Lærum með leiðtogum - Þorsteinn V. Einarsson: Leikreglur karlmennskunnar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
6. mars 2019 12:10 til 12:50
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

Bratti

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fimmti leiðtoginn í fyrirlestraröðinni Lærum með leiðtogum er Þorsteinn V. Einarsson, stofnandi #karlmennskan á samfélagsmiðlum, kennari og fyrrum starfsmaður félagsmiðstöðva hefur á síðustu misserum hrist upp í hugmyndum ungs fólks um karlmennsku. Í erindinu deilir hann reynslu sinni og vangaveltum tengdum jafnrétti.

Nánar um fyrirlestraröðina

Lærum með leiðtogum er heiti á nýrri fyrirlestraröð sem Menntavísindasvið Háskóla Íslands stendur fyrir skólaárið 2018-2019. 

Fimm leiðtogar munu heimsækja okkur og eru fyrirlestrarnir haldnir að jafnaði á miðvikudögum í hádeginu frá kl. 12.10-12.50 í Bratta í húsnæði Háskóla Íslands í Stakkahlíð.

Allir fyrirlesarar eiga það sameiginlegt að vera leiðtogar og brautryðjendur á ólíkum sviðum samfélagsins. Þau munu segja frá verkefnum sínum og ekki síst miðla sínum persónulega lærdómi af því að takast á við áskoranir. Fyrirlestrarnir munu fjalla um menntun, hreyfingu, andlega líðan, kvikmyndir, jafnrétti og karlmennsku, markmiðasetningu, samskipti, ímyndunaraflið og samfélagslega þátttöku.

Lærum með leiðtogum hefur það markmið að veita nemendum og starfsfólki Háskólans innblástur, skapa umræður og vera uppspretta lærdóms. Menntavísindasvið býður framhaldsskólanemendur velkomna á hvern viðburð til að mynda betri tengsl og byggja brýr milli skólastiga.