Skip to main content

Kynningarfyrirlestur - Steinunn H. Lárusdóttir

Kynningarfyrirlestur - Steinunn H. Lárusdóttir  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
28. febrúar 2019 15:00 til 16:00
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

Bratti

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Þann 28. febrúar flytur Steinunn H. Lárusdóttir, prófessor við Menntavísindasvið, erindi í tilefni að framgangi sínum.

Á Menntavísindasviði er haldið upp á framgang eða ráðningu nýrra prófessora með sérstökum kynningarfyrirlestri. Athafnirnar hefjast með stuttu yfirliti yfir helstu störf viðkomandi prófessors, en svo tekur hann sjálfur við og flytur erindi um störf sín og framtíðarsýn í kennslu og rannsóknum. Í lok athafnarinnar gefst svo tækifæri til þess að spjalla og gleðjast með hinum nýja prófessor. 

Tilgangur kynningarfyrirlestranna er að vekja athygli á hinum nýja prófessor, störfum hans og áherslum, ekki síst til þess að auka tengsl og samstarf innan skólans, en einnig til þess að hefja prófessorsstarfið til vegsemdar.

Boðið verður upp á léttar veitingar a dagskrá lokinni.

Allir velkomnir.