Skip to main content

Kynningarfyrirlestur prófessors ― Helga Rut Guðmundsdóttir

Kynningarfyrirlestur prófessors ― Helga Rut Guðmundsdóttir - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
5. mars 2020 15:00 til 16:30
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

Bratti

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Þann 5. mars 2020 flytur Helga Rut Guðmundsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið, erindi í tilefni að framgangi sínum.

Á Menntavísindasviði er haldið upp á framgang eða ráðningu nýrra prófessora með sérstökum kynningarfyrirlestri. Athafnirnar hefjast með stuttu yfirliti yfir helstu störf viðkomandi prófessors, en svo tekur hann sjálfur við og flytur erindi um störf sín og framtíðarsýn í kennslu og rannsóknum. Í lok athafnarinnar gefst svo tækifæri til þess að spjalla og gleðjast með hinum nýja prófessor. Tilgangur kynningarfyrirlestranna er að vekja athygli á hinum nýja prófessor, störfum hans og áherslum, ekki síst til þess að auka tengsl og samstarf innan skólans, en einnig til þess að hefja prófessorsstarfið til vegsemdar.

Verið öll velkomin.