Kynningarfundur Vísindagarða Háskóla Íslands
Háskólatorg
Litla torg
Uppbygging í landi Vísindagarða Háskóla Íslands í Vatnsmýri er í fullum gangi en markmið garðanna er að efla vísindarannsóknir og nýsköpun í samstarfi við atvinnulíf. Kynningafundur um uppbygginguna og áhugaverðar lóðir á svæði garðanna fer fram 6. nóvember kl. 16:00 á Litla Torgi.
Dagskrá
Hvers vegna á Háskólinn Vísindagarða?
Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ
Að efla samfélagið
Hilmar Bragi Janusson, stjórnarformaður VHÍ
Þetta eru Vísindagarðar Háskóla Íslands - stutt erindi:
Hrólfur Jónsson frá Vísindagörðum
Sesselja Ómarsdóttir frá Alvotech
Vera Dögg Antonsdóttir frá Grósku
Kristinn Jón Ólafsson frá Reykjavíkurborg
Vísindagarðar Háskóla Íslands ehf. er félag í 94,6% eigu Háskólans og 5,4% í eigu Reykjavíkurborgar. Félagið var stofnað til að efla samstarf fyrirtækja, rannsóknastofnana og háskóla um nýsköpun og skapa aðstöðu fyrir frumkvöðla.
Fyrirmyndin er sótt til Evrópu og Bandaríkjanna þar sem uppbygging vísindagarða hefur verið hröð. Rannsóknir sýna að samstarf atvinnulífs og háskóla á sviði tækni og vísinda með nýsköpun að markmiði skilar góðum árangri ef slík miðstöð nýsköpunar er fundin staður nálægt öflugum háskóla.
Allir áhugasamir eru velkomnir á kynningarfundinn. Léttar veitingar og spjall í lokin.
Kynningarfundur Vísindagarða Háskóla Íslands fer fram miðvikudaginn 31. október kl. 16 á Lilta torgi Háskólatorgs.