Skip to main content

Kynningarfundur fyrir nýnema á Hugvísindasviði

Kynningarfundur fyrir nýnema á Hugvísindasviði - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
26. ágúst 2022 13:00 til 15:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Auðarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Hugvísindasvið Háskóla Íslands býður nýnemum á kynningarfund í Auðarsal í Veröld – húsi Vigdísar föstudaginn 26. ágúst kl. 13:00. (Smellið hér til að fylgjast með fundinum í streymi). 

Dagskrá fundarins:

  • Ávarp Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands.
  • Kynning á Hugvísindasviði. Ólöf Garðarsdóttir, forseti Hugvísindasviðs.
  • Kynning á Uglu – innri vef HÍ.
  • Kynning á félagsstarfi nemenda.

Að fundinum loknum verða kynningarfundir í deildum og hefjast þeir kl. 14:00. Þar verður greint frá námstilhögun og veittar nánari upplýsingar um nám og félagsstarf í viðkomandi deildum:

  • Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði
    - Fornleifafræði, stofa 311 í Árnagarði.
    - Heimspeki, stofa 304 í Árnagarði.
    - Sagnfræði, stofa 301 í Árnagarði.
  • Guðfræði- og trúarbragðafræðideild í Aðalbyggingu, stofu 229.
  • Íslensku- og menningardeild í Árnagarði, stofu 201.
  • Mála- og menningardeild í Veröld - húsi Vigdísar, stofu 023.

Kennsla hefst mánudaginn 29. ágúst. Nýnemadagar Háskóla Íslands hefjast 5. september.

Á nýnemavef Háskóla Íslandsvef Stúdentaráðs og á vef Hugvísindasviðs eru gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema um námið og skólann, þar á meðal stundaskrár. Eins er hægt að fá innsýn í starfið á  facebooksíðum skólans og sviðsins og á Instagram síðum sviðs og skóla.

Ef einhverjar spurningar vakna um námið er hægt að hafa samband við starfsfólk á skrifstofu í síma 525 4400, senda okkur tölvupóst á netfangið hug@hi.is eða koma við á skrifstofu sviðsins í Aðalbyggingu (3. hæð); hún er opin kl. 10-12 og 13-15 virka daga.

Stúdentar standa vaktina á upplýsingaborði fyrir nýnema á Háskólatorgi.

Kynningarfundur fyrir nýnema á Hugvísindasviði