Skip to main content

Kynningardagar fyrir nýja erlenda nemendur

Kynningardagar fyrir nýja erlenda nemendur - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
3. janúar 2019 9:30 til 4. janúar 2019 21:00
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Kynningardagar fyrir erlenda nemendur eru haldnir í upphafi hvers misseris. Markmið daganna er að bjóða nemendur velkomna, kynna þjónustu í boði og aðstoða nemendur við að aðlagast nýrri menningu.

Dagskráin er fjölbreytt og er m.a. boðið upp á örnámskeið í íslensku og námskeið frá Náms- og starfsráðgjöf þar sem farið er yfir leiðir til að ná árangri í náminu við Háskólann. Þá eru kynningarfundir sviða einnig hluti af dagskránni.

Nemendur fá auk þess leiðsögn um háskólasvæðið og kynningu á þjónustu Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns. 

Á fimmtudeginum 3. janúar verður svo móttaka á Háskólatorgi þar sem Jón Atli Benediktsson rektor og Elísabet Brynjarsdóttir forseti Stúdentaráðs halda ávörp og bjóða nemendur velkomna. Boðið verður upp á tónlist og veitingar.

DAGSKRÁ 

Jón Atli Benediktsson rektor og Elísabet Brynjarsdóttir forseti Stúdentaráðs bjóða nemendur velkomna í móttöku þann 3. janúar á Háskólatorgi. Boðið verður upp á tónlist og veitingar.

Kynningardagar fyrir nýja erlenda nemendur