Skip to main content

Kynning á skiptinámi, starfsþjálfun og sumarnámi

Kynning á skiptinámi, starfsþjálfun og sumarnámi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
24. október 2018 13:20 til 14:00
Hvar 

Gimli

102

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Á kynningunni verður farið yfir þá fjölmörgu möguleika á skiptinámi, starfsþjálfun og sumarnámi sem standa nemendum Félagsfræði-, mannfræði og þjóðfræðideildar og Félagsráðgjafadeildar til boða. 

Háskóli Íslands er í samstarfi við yfir 500 háskóla víða um heim og árlega nýta sér fjölmargir að taka hluta af náminu erlendis og sækja sér þannig sérhæfingu í námi og dýrmæta reynslu.

Kostir þess að fara í skiptinám:
» fjölbreyttara og sérhæfðara námsframboð 
» einingar metnar 
» einfaldara og ódýrara en nám á eigin vegum 
» möguleikar á ferða- og dvalarstyrkjum 
» niðurfelld skólagjöld við gestaskóla 
» tækifæri til að kynnast tungumáli og menningu annarra landa
» alþjóðlegt tengslanet
» dýrmæt reynsla sem nýtist í frekara námi eða á vinnumarkaði

Kynningin er haldin í tengslum við Alþjóðadaga HÍ 22.-26. október.

Alþjóðatorgið
Fimmtudaginn 25. október er svo komið að hápunkti Alþjóðadaga á Háskólatorgi milli kl. 11.30-13.30. Þar gefst nemendum kostur á að kynna sér möguleika á námi erlendis, spjalla við fyrrverandi og núverandi skiptinema, fulltrúa frá sendiráðum og fjölmörgum íslenskum stofnunum og félögum. Dans, tónlist, happdrætti og fleira spennandi verður á dagskrá. 
Nánari upplýsingar

Á kynningunni verður farið yfir þau fjölmörgu tækifæri til námsdvalar erlendis sem standa nemendum til boða

Kynning á skiptinámi, starfsþjálfun og sumarnámi