Skip to main content

Kveikja - Þín þekking í þágu heimsins

Kveikja - Þín þekking í þágu heimsins - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
17. janúar 2020 8:00 til 18:30
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Námskeiðið er einungis ætlað nemendum á þriðja ári í grunnnámi við Háskóla Íslands. Vinnan fer fram þvert á námsleiðir og því er mikilvægt að nemendur tilgreini á hvaða sviði og í hvaða deild þeir stunda nám. 

Námskeiðið fer fram föstudaginn 17. janúar 2020 kl. 8:00-18:30.

Fjöldi þátttakenda takmarkast við 20 nemendur af hverju sviði og tekið verður mið af fjölbreytni við val á nemendum. Það skiptir því miklu að sækja um snemma.

Frekari upplýsingar má finna á www.hi.is/kveikja

Vilt þú átta þig betur á eigin styrkleikum, efla tengslanetið og um leið öðlast aukna færni í að nýta þekkingu þína og hugmyndir í þágu samfélagsins? Viltu vinna með fjölbreyttum hópi nemenda að nýjum lausnum við áskorunum samtímans, eins og loftslagsbreytingum og aukinni velsæld allra?