Skip to main content

Konur sem postular og prestar: Fyrstu, síðustu og næstu 100 árin

Konur sem postular og prestar: Fyrstu, síðustu og næstu 100 árin - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
17. janúar 2020 13:30 til 16:00
Hvar 

Þjóðminjasafn

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Á síðasta ári var kona númer eitt hundrað vígð sem prestur innan íslensku þjóðkirkjunnar. Af því tilefni efnir Guðfræðistofnun Háskóla Íslands til málþings um prestvígslu kvenna í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins 17. janúar næstkomandi kl. 13:30–16. Á málþinginu munu fjórir prófessorar við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild HÍ leitast við að svara m.a. eftirfarandi spurningum:

  • Hver eru helstu rökin með og á móti prestvígslu kvenna?
  • Hvers vegna tók það svona langan tíma að vígja fyrstu konuna á Íslandi?
  • Hvernig er staðan í stærstu kirkjudeild heims, rómversk-kaþólsku kirkjunni?
  • Hefur prestvígsla kvenna breytt þjónustu kirkjunnar?
  • Hver er gagnsemi þess að greina á milli kynferðis og kyngervis?

Dagskrá:

  • Rúnar M. Þorsteinsson, „Postulinn Júnía á fyrstu öld og kaþólskir kvenprestar á þeirri tuttugustu og fyrstu.“
  • Arnfríður Guðmundsdóttir, „Fyrir og eftir prestvígslu kvenna. Löng og ströng leið kvenna til vígðrar þjónustu í evangelísk lútherskri kirkju á Íslandi.“
  • Hlé: kaffiveitingar
  • Hjalti Hugason, „1974 og hvað svo? Brot úr sögu prestastéttar.“
  • Sólveig Anna Bóasdóttir, „Kynferði, kyngervi, kynjalíkön og fleira kynlegt. Hugleiðingar um mikilvægi kynferðisflokkunar nú sem fyrr!“

Málþingsstjóri: Sr. Aldís Rut Gísladóttir.

Málþingið er opið öllum. Boðið verður upp á veitingar í hléi.

Biskupsvígsla í Hallgrímskirkju.

Konur sem postular og prestar: Fyrstu, síðustu og næstu 100 árin