Kennsludagur Heilbrigðisvísindasviðs
Hvenær
11. desember 2019 13:00 til 15:00
Hvar
Staðsetning auglýst þegar nær dregur
Nánar
Aðgangur ókeypis
Kennsludagur HVS 2019 fer fram miðvikudaginn 11.desember kl. 13:00-15:00. Staðsetning verður auglýst þegar nær dregur.
Að þessu sinni munu fulltrúar frá Kennslusviði HÍ koma til okkar og fjalla um innleiðingu Canvas, Inspera og Turnitin.
Eins og flestir sjálfsagt vita erum við í skipulögðu innleiðingarferli á námsumsjónarkerfinu Canvas (í stað Uglu og Moodle), en Inspera og Turnitin hafa þegar verið prófuð af einhverjum deildum á HVS. Notkun á þeim kerfum mun nú aukast.
Kennsludagurinn verður án efa fróðlegur og skemmtilegur. Í lok dagsins verður boðið upp á hressingu í anda jólanna.