Skip to main content

Jane Austen á meðal kvenna. Skáldkonan í þremur vinsælum kvennagreinum.

Jane Austen á meðal kvenna. Skáldkonan í þremur vinsælum kvennagreinum. - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
19. febrúar 2019 16:30 til 17:30
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Alda Björk Valdimarsdóttir ræðir hér um nýútkomna bók sína Jane Austen og ferð lesandans. Verk Jane Austen hafa aldrei verið vinsælli en á okkar dögum og sér ekki fyrir endann á skáldsögum og kvikmyndum sem sótt eru í þau. Glíman við Austen fer sjaldnast fram í einrúmi og hún er höfundur sem lesendur eiga í ákafari samræðum við en gengur og gerist. Í fyrirlestrinum er sagt frá því hvernig ímynd Austen lifir áfram innan þriggja bókmenntagreina sem löngum hafa verið tengdar konum og njóta gríðarlegrar hylli, þ.e. í ástarsögum, skvísusögum og sjálfshjálparritum.

Ókeypis aðgangur og allir velkomnir

Facebook viðburður

Alda Björk Valdimarsdóttir

Jane Austen á meðal kvenna. Skáldkonan í þremur vinsælum kvennagreinum.