Innsetningarathöfn - Sveinn Agnarsson
Hvenær
7. febrúar 2020 15:30 til 16:30
Hvar
Oddi
101
Nánar
Aðgangur ókeypis
Sveinn Agnarsson hefur hlotið framgang í stöðu prófessors við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Af því tilefni verður haldin innsetningarathöfn þann 7. febrúar undir yfirskriftinni Fiskur og fólk.
Rannsóknir Sveins snúa einkum að íslenskum sjávarútvegi. Hann lauk BA prófi í sagnfræði (1982) og cand oecon. prófi í viðskiptafræði (1989) frá Háskóla Íslands og ekon.dr prófi í hagfræði frá Gautaborgarháskóla (1998). Sveinn starfaði við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands 1997-2012, en var þá ráðinn í stöðu dósents við Viðskiptafræðideild. Hann fékk framgang í stöðu prófessors 2019.
Verið öll velkomin
Sveinn Agnarsson, prófessor