Skip to main content

Hvernig grannar erum við? Sýning og ráðstefna á Ísafirði um samskipti Íslands og Grænlands

Hvernig grannar erum við? Sýning og ráðstefna á Ísafirði um samskipti Íslands og Grænlands - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
15. júní 2018 16:00 til 19:00
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Í tilefni af 100 ára fullveldi Íslands árið 2018 er við hæfi að huga að tengslum landsins við næsta nágranna þess, Grænland. Tengsl þessara landa hafa farið mjög vaxandi frá því að  Vestnorræna ráðið var stofnað árið 1985. Nú aukast þau með hverju ári og ríkt tilefni til þess að gaumgæfa þau í sögu og samtíð.

Af þessu tilefni er boðað til ráðstefnu og sýningar á Ísafirði 15. og 16 júní 2018. Sýningin fjallar um heimsókn hóps fólks frá Ammassalik á austurströnd Grænlands til Ísafjarðar árið 1925. Þá komu um 90 manns til bæjarins með skipi á leið sinni til Scoresbysunds þar sem dönsk stjórnvöld höfðu ákveðið að koma á fót nýrri byggð. Fjöldi ljósmynda frá heimsókninni er varðveittur, flestar á ljósmyndasafninu á Ísafirði, og verður sýningin sett upp í Safnahúsinu þar. Sýningin verður opnuð föstudaginn 15. júní 2018 og stendur sumarlangt.

Á ráðstefnunni ræða fyrirlesarar frá Danmörku, Grænlandi og Íslandi um tengsl Íslands og Grænlands sögulega og í samtíma, viðhorf á milli þeirra, samskipti í menningarmálum og atvinnulífi og málefni er varða fullveldi landanna. Ráðstefnan verður haldin í Edinborgarhúsinu laugardaginn 16. júní frá kl 9:30-17:00. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun ávarpa ráðstefnuna. Allir velkomnir.

Dagskrá:

Föstudagur 15. júní

  • Kl. 16:00. Jóna Símonía Bjarnadóttir. Opnun sýningarinnar, Grænlendingar á Ísafirði árið 1925.
  • Kl. 17:30. Kvikmyndasýning í Ísafjarðarbíó. Kvikmyndin Sumé, the Sound of Revolution. Leikstjóri Inuk Silis Høegh
  • Kl. 18:30. Móttaka á vegum bæjarins, ávarp bæjarstjóra Ísafjarðar.
    Dines Mikaelsen, Tasiilaq. Austur-Grænland, næsti granni Íslendinga.

Laugardagur 16. júní

Ráðstefnan, Hvernig grannar erum við?

  • Kl. 9:30. Guðmundur Hálfdanarson. Setning
  • Kl. 9:40. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Ávarp
  • Kl. 10:00. Sumarliði R. Ísleifsson. Hvað geta myndirnar frá Grænlandsheimsókninni árið 1925 sagt okkur?
  • Kl. 10:30. Erik Gant. Ittoqqortoormiit: Sögulegar fjölskyldumyndir
  • Kl. 11:00. Hlé, hressing
  • Kl. 11:15. Guðfinna Hreiðarsdóttir. Minningin um heimsóknina frá Grænlandi 1925
  • Kl. 11:45. Guðmundur Hálfdanarson. Danmörk, Grænland, Ísland og fullveldið
  • Kl. 12:15. Natuk Lund Olsen. Leiðin til sjálfstæðis og staða Grænlands í samtímanum
  • Kl. 12:45. Hádegisverður og hlé til kl. 15. Leiðsögn um bæinn
  • Kl. 14:30. Iddimanngiiu Jensen Bianco. Vest-norrænt samstarf um ferðamál
  • Kl. 15:00. Jóhanna Björk Sveinbjörnsdóttir. Ferðamálin og samstarf yfir Grænlandssund
  • Kl. 15:30. Ann-Sofie Nielsen Gremaud, Samtímalist sem áhrifavaldur fyrir nýjar (grænlenskar-íslenskar) frásagnir
  • Kl. 16:00. Hrafn Jökulsson. Menningarsamstarf Íslands og Austur-Grænlands
  • Kl. 16:30. Pallborð um samtalið á milli Íslands og Grænlands. Umsjón Guðmundur Hálfdanarson. Þáttakendur Ann-Sofie Nielsen Gremaux, Dines Mikalesen, Hrafn Jökulsson, Sumarliði R. Ísleifsson og Natuk Lund Olsen.
  • Kl: 17:15. Málþingslok. Jóna Símonía Bjarnadóttir og Sumarliði R. Ísleifsson
  • Um kl. 18:00. Boðið upp á kajakferðir. Borea Adventures

Erindi á ráðstefnunni verða flutt á íslensku, ensku og dönsku

Aðstandendur og stuðningsaðilar

Safnahúsið á Ísafirði, Byggðasafn Vestfjarða, Prófessorsembætti Jóns Sigurðssonar, Háskóla Íslands, Námsleið í hagnýtri menningarmiðlun, Hugvísindasviði Háskóla Íslands.

Stuðningur: AirIcelandConnect, Norland Air, Prófessorsembætti Jóns Sigurðssonar, Hugvísindasviði Háskóla Íslands, Vestnorræni höfuðborgarsjóðurinn, Safnasjóður, Uppbyggingasjóður Vestfjarða, 100 ára fullveldi Íslands.

 

 

Hópurinn frá Ammassalik sem heimsótti Ísafjörð árið 1925.

Hvernig grannar erum við? Sýning og ráðstefna á Ísafirði um samskipti Íslands og Grænlands