Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2022
Aðalbygging
Hátiðasalur
Hvatningarverðlauna jafnréttismála 2022 verða afhent við athöfn í Hátíðasal Háskóla Íslands miðvikudaginn 30. nóvember kl. 8.30-10. Viðburðurinn er öllum opinn en skráning á hann fer fram á vef Samtaka atvinnulífsins. Viðburðurinn verður einnig í beinu streymi.
Verðlaunin eru nú veitt í tíunda sinn en Samtök atvinnulífsins og Háskóli Íslands standa saman að þeim.
Veittar verða viðurkenningar í tveimur flokkum þar sem horft er til kynjajafnréttis annars vegar en hins vegar verður Jafnréttissprotinn veittur vegna áhugaverðs verkefnis eða framtaks með tilliti til fjölmenningar, fötlunar og annarra brýnna viðfangsefna jafnréttismála.
Við athöfnina verða jafnframt flutt erindi sem snerta ólíkar víddir jafnréttis í íslensku atvinnulífi.
DAGSKRÁ
Ávarp
Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ
Ávarp
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA
Við töpum öll
Thelma Kristín Kvaran, stjórnendaráðgjafi og sérfræðingur
í ráðningum
Nýsköpunarvirkni fatlaðs fólks
Stefan C. Hardonk, prófessor við HÍ
Jafnrétti fyrir öll – Samkaup alla leið
Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs-
og samskiptasviðs Samkaupa
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar-
og nýsköpunarráðherra, afhendir Hvatningarverðlaun jafnréttismála og Jafnréttissprotann.
Hvatningarverðlauna jafnréttismála 2022 verða afhent við athöfn í Hátíðasal Háskóla Íslands miðvikudaginn 30. nóvember kl. 8.30-10. Viðburðurinn er öllum opinn en beint streymi verður einnig frá honum.