Hvað leynist í laufinu - Skordýraskoðun í Elliðaárdal
Elliðaárdalur – Við gömlu rafstöðina
Pöddur eru um áttatíu prósent allra dýrategunda á jörðinni og nú fá fróðleiksfúsir Íslendingar tækifæri til að skoða skordýrin í algjöru návígi með vísindamönnum Háskóla Íslands. Háskólinn og Ferðafélag barnanna stefna nefnilega enn á ný í rannsóknaferð um Elliðaárdal þar sem leitað verður skordýra í laufi og vatni nærri Rafstöðinni í Elliðaárdal.
Gangan þetta árið verður miðvikudaginn 13. júní kl. 17, en mæting er við gömlu rafstöðina við Elliðaár. Skordýr eru langstærsti flokkur dýra í heiminum. Því má reikna með fjölbreyttu lífríki við Elliðaárnar á þriðjudag og veðurspá er þokkaleg til skordýraskoðunar.
Ókeypis er í gönguna eins og allar aðrar í röðinni Með fróðleik í fararnesti.
Skordýrin verða skoðuð í návígi í ferð Háskóla Íslands og Ferðafélags Íslands í Elliðaárdal miðvikudaginn 13. júní kl. 17.