Hugurinn ber mig hálfa leið — málþing um bernskulæsi
Stakkahlíð / Háteigsvegur
Skriða
Föstudaginn 8. nóvember stendur Bókmenntaborgin Reykjavík, í samvinnu við SÍUNG - félag barnabókahöfunda, Fyrirmynd - félag myndhöfunda og Menntavísindasvið HÍ, fyrir málþingi um bernskulæsi í víðum skilningi í Skriðu, sal Menntavísindasviðs HÍ í Stakkahlíð. Þingið, sem stendur frá kl. 14 – 17, er öllum opið og aðgangur er ókeypis. Sjónum verður beint að mikilvægi orðlistar, mynda og tóna í lífi ungra barna og fjallað um þetta efni frá ólíkum hliðum.
Málþingið á erindi til allra sem sinna ungum börnum eða koma að málefnum sem þau varða, kennara og annars starfsfólks á leikskólum, bókasafnafólks, rit- og myndhöfunda, fræðimanna, foreldra og aðstandenda barna og allra annarra sem áhuga hafa á þessu mikilvæga málefni.
Kynnir og stjórnandi málþingsins verður Ingimar Waage, lektor í listkennslu við Listaháskóla Íslands.
DAGSKRÁ:
Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir, lektor við Menntavísindasvið HÍ:
„Þykist þú kunna að lesa, eða hvað?“
Í erindinu fjallar Anna um bernskulæsi og mikilvægi þess að börn hafi aðgang að vönduðum, fjölbreyttum og skemmtilegum bókum á heimilum sínum og í leikskólum.
Kristín Ragna Gunnarsdóttir, myndhöfundur og Anna Cynthia Leplar, myndhöfundur og deildarstjóri teiknibrautar Myndlistarskólans í Reykjavík:
„Máttur myndlýsinga: Mikilvægi myndmáls í barnabókum.“
Bryndís Loftsdóttir, Félagi íslenskra bókaútgefenda:
„Óskabækur leikskólabarna eða barnabækur fyrir kaupendur?“ Bryndís spjallar um þróun í sölu og útgáfu barnabóka síðustu ár.
HLÉ
Helga Rut Guðmundsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið HÍ: „Engin tunga er án tóna. Um töfratengingar tóna og tungumáls.“
Ásgrímur Örnólfsson, aðstoðarleikskólastjóri:
„Frá skrímslum til Ljónshjarta. Ferðalag um bókheim Ægisborgar.“ Ásgrímur segir frá því hvernig hugað er að og unnið með bækur í leikskólanum Ægisborg en þar er mjög framsækið starf unnið á þessu sviði.
Ingimar Waage, lektor við LHÍ: Samantekt og umræður.
Að þinginu loknu verður boðið upp á léttar veitingar og notalega samveru á bókasafni Menntavísindasviðs.
Föstudaginn 8. nóvember stendur Bókmenntaborgin Reykjavík, í samvinnu við SÍUNG - félag barnabókahöfunda, Fyrirmynd - félag myndhöfunda og Menntavísindasvið HÍ, fyrir málþingi um bernskulæsi í víðum skilningi í Skriðu,