Skip to main content

Grunnnám - hvað svo?

Grunnnám - hvað svo? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
22. mars 2018 16:00 til 17:30
Hvar 

Háskólatorg

Litla torg

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Hvað er í boði í Háskóla Íslands að loknu grunnnámi?

Getur nemandi með BA-gráðu í mannfræði farið í talmeinafræði?
Getur nemandi með BS-gráðu í hjúkrunarfræði farið í framhaldsnám í guðfræði?
Getur nemandi með BS-gráðu í tölvunarfræði farið í framhaldsnám í leikskólakennarafræði?
Hverjar eru forkröfurnar fyrir hverja og eina námsleið í framhaldsnámi við Háskóla Íslands?

Sérfræðingar deilda og fræðasviða Háskóla Íslands veita svör við þessum spurningum og ótal fleiri á Litla-Torgi Háskólatorgs fimmtudaginn 22. mars milli kl. 16 og 17:30.

Enn fremur verða náms- og starfsráðgjafar á staðnum og veita ráðgjöf og fulltrúar frá Nemendaskrá aðstoða við innritun og skrásetningu. Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 500 háskóla um allan heim og sérfræðingar frá Skrifstofu alþjóðasamskipta verða einnig viðstaddir og kynna hina fjölbreyttu möguleika í skiptinámi.

Viðburðurinn er ætlaður öllum þeim sem hyggja á framhaldsnám í Háskóla Íslands.

Komdu og kynntu þér ótal möguleika á framhaldsnámi.

Umsóknarfrestur um framhaldsnám við Háskóla Íslands er til 15. apríl en sótt er um námið á heimasíðu skólans.

Hvað er í boði í Háskóla Íslands að loknu grunnnámi?

Grunnnám - hvað svo?