Skip to main content

Frestað - Sæmundarstund 2020

Frestað - Sæmundarstund 2020 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
20. mars 2020 11:00 til 11:30
Hvar 

Aðalbygging

Við styttuna af Sæmundi á selnum fyrir framan Aðalbyggingu

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Hinni tíundu árlegu Sæmundarstund, sem fara átti fram föstudaginn 20. mars kl. 11.00 til 11.30, við styttuna af Sæmundi fróða (við Aðalbyggingu Háskólans), hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Að viðburðinum standa Oddafélagið, Stúdentaráð og Skrifstofa rektors Háskóla Íslands.

Sæmundarstund var fyrst haldin á aldarafmæli Háskóla Íslands árið 2011 að frumkvæði Oddafélagsins, sem er félag áhugamanna um endurreisn fræðaseturs að Odda á Rangárvöllum þar sem Sæmundur fróði bjó. Stundin hefur verið haldin árlega síðan, jafnan á degi sem næst vorjafndægri.

Þar er lærdómsmannsins og þjóðsagnapersónunnar Sæmundar fróða Sigfússonar minnst en hann var uppi á 11. og 12. öld. Sæmundur fór utan til náms og nam m.a. við skóla í Evrópu áður en hann sneri aftur til Íslands og gerðist prestur að Odda á Rangárvöllum.

Líkt og fyrri ár fer Sæmundarstund fram við styttuna af Sæmundi á selnum, sem stendur í Skeifunni fyrir framan Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Styttuna gerði Ásmundur Sveinsson og vísar hún til frægrar þjóðsögu af viðureign Sæmundar við kölska en samkvæmt þjóðsögunni flutti hann Sæmund heim til Íslands í selslíki.
Viðri illa, færist Sæmundarstund inn í anddyri Aðalbyggingar.

Dagskrá
Kl. 11:00
1. Þór Jakobsson, fyrrverandi formaður Oddafélagsins, greinir í örfáum orðum frá sögu og tilgangi Sæmundarstundar.
2. „Kór Sæmundarstundar“. Börn í Leikskólanum Mánagarði syngja tvö lög.
3. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, flytur ávarp.
4. Jóna Þórey Pétursdóttir, forseti Stúdentaráðs, flytur ávarp.
5. Börnin í Mánagarði syngja eitt eða tvö lög.
Kl. 11: 30 Sæmundarstund slitið.

Tíunda árlega Sæmundarstund fer fram föstudaginn 20. mars kl. 11.00 til 11.30, við styttuna af Sæmundi fróða (við Aðalbyggingu Háskólans). Að viðburðinum standa Oddafélagið, Stúdentaráð og Skrifstofa rektors Háskóla Íslands.

Sæmundarstund 2020