FRESTAÐ: Maðurinn sem Ísland elskaði - Málþing um Paul Gaimard
Veröld - Hús Vigdísar
Fyrirlestrasalur
Maðurinn sem Ísland elskaði - Málþing um Paul Gaimard
Veröld - hús Vigdísar, 3. apríl kl. 14:00-17:30
Vigdísarstofnun og Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands efna til málþings í Veröld – húsi Vigdísar þann 3. apríl, um franska náttúruvísindamanninn Paul Gaimard sem ferðaðist um Ísland árin 1835-6 og safnaði gögnum í vísindarit sín. Þátttakendur í þinginu eru Anna Agnarsdóttir, Árni Snævarr, Jan Borm, Sumarliði Ísleifsson og Æsa Sigurjónsdóttir. Boðið verður upp á léttar veitingar í boði Sendiráðs Frakklands á Íslandi að þinginu loknu.
Dagskrá þingsins má nálgast hér.
Viðburðurinn er haldinn af Vigdísarstofnun og Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands í samstarfi við Sendiráð Frakklands á Íslandi og Forlagið.
Maðurinn sem Ísland elskaði - Málþing um Paul Gaimard